Páskaleyfi

Föstudagurinn 11. apríl er skertur nemendadagur og mæta nemendur í skólann kl.10:00. Að loknum hádegisverði halda nemendur heim eða á Skólasel/Skýið sem opnar fyrr þennan dag. Jafnframt er þetta síðasti skóladagur nemenda fyrir hefðbundið páskaleyfi sem hefst mánudaginn 14.apríl.

Skólahald hefst að nýju samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 23. apríl.

Við minnum á að fimmtudagurinn 24. apríl er sumardagurinn fyrsti, hann er almennur frídagur.

Við óskum ykkur gleðilegrar páskahátíðar.
Starfsfólk Sandgerðisskóla