Nemendur könnuðu heim hrafnsins

Árgangur 2018
Árgangur 2018

Nemendur í 3. bekk unnu með bókina Hrafninn úr bókaflokknum Milli himins og jarðar. Verkefnið hófst á því að sagan var lesin í heild sinni. Að því loknu unnu nemendur með KVHL-aðferðina, þar sem þau veltu fyrir sér hvað þau kynnu nú þegar um hrafninn, hvað þau vildu vita meira, hvernig þau gætu aflað sér upplýsinga og hvað þau hefðu lært.

Nemendur unnu fjölbreytt og skemmtileg verkefni tengd sögunni og hrafninum. Þau bjuggu meðal annars til nýjan endi á söguna, skrifuðu orð og skýrðu merkingu þeirra, sömdu spurningar fyrir Kahoot, fundu áhugaverðar fullyrðingar í bókinni og skrifuðu þær niður, sömdu krummaljóð og skrifuðu þau í Word-skjal í tölvutíma, máluðu geisladiska og settu ljóðin sín á þá. Einnig hlustuðu þau á Krummakvæði og teiknuðu myndir út frá því, tengdu saman málsgreinar og myndir og unnu fræðslu- og lesskilningsverkefni. Að lokum föndraði hver nemandi sinn eigin hrafn.

Í tengslum við verkefnið heimsóttu nemendur Þekkingarsetur Suðurnesja, þar sem tekið var einstaklega vel á móti hópnum. Þar fengu þau fræðslu um íslenska hrafninn, sem er einstakur fugl. Við enduðum síðan kennsluna um hrafninn með vettvangsferð í Gryfjuna, þar sem nemendur leituðu að laupi, sem er hreiður hrafnsins.

Smellið hér til að sjá fleiri myndir frá verkefnavinnunni.

Hrafninn Hrafninn Hrafninn Hrafninn Hrafninn

Hrafninn Hrafninn Hrafninn Hrafninn Hrafninn