Nemendafélagið styrkir gott málefni – Kökusneiðarnar gáfu vel

Nemendafélag Sandgerðisskóla stóð fyrir fjáröflun í síðustu viku þar sem þau buðu til sölu kökusneið frá Sigurjónsbakarí og mjólk eða safa með. Kökusneiðin var seld á 500kr. stykkið. Salan gekk mjög vel og seldu þau tæplega 300 sneiðar og söfnuðust 120.000kr.  Nemendafélaginu fannst það mest viðeigandi að styrkja málefni sem tengdist börnum og ætlum við að styrkja Styrktarfélag Krabbameinssjúkra Barna eins og við gerðum árið 2021.

Nemendafélagið þakkar góðar móttökur í sölunni og er stolt að því að styrkja gott málefni.  

Nemendaráð

Nemendafélag Sandgerðisskóla