Minnum á Fræðslugátt

Við viljum benda á Fræðslugátt Menntamálastofnunar en þar er allt rafrænt námsefni stofnunarinnar aðgengilegt á einum stað.

Vefurinn var opnaður í vor til að veita betra aðgengi að efninu þegar skólum var lokað tímabundið og nám nemenda færðist mikið til inn á heimilin.

Fræðslugáttin er aldursskipt og veitir aðgang að fjölmörgum rafbókum, hljóðbókum, vefum og fræðslumyndum sem auðvelt er að nálgast.

Við hvetjum nemendur, foreldra og kennara að nýta sér efnið sem þar er að finna.

Fræðslugáttinn er einnig aðgengileg á heimasíðu skólans.

Kynningarskrá 2020

Kynningarskrá 2020