- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Sigurður Gunnar eða Siggi eins og hann er jafnan kallaður, heimsótti Sandgerðisskóla á dögunum og kynnti stærðfræðileikinn Evolytes fyrir nemendum í 3.–5. bekk.
Nemendur fengu að kynnast leiknum og þeim fjölbreyttu verkefnum sem þar er að finna. Mikill áhugi var meðal nemenda og tóku þeir virkan þátt í kynningunni.
Samfélagsverkefnið Andvari fjármagnar stafrænt leyfi að Evolytes fyrir tvo árganga að eigin vali í öllum grunnskólum landsins skólaárið 2026–2027. Þannig fá nemendur í 3. og 4. bekk aðgang að námsleiknum og upplýsingakerfi Evolytes án kostnaðar. Nemendur í 5. bekk taka jafnframt þátt í verkefni hjá Evolytes og munu því allir nemendur í 3.–5. bekk vinna með Evolytes í stærðfræðinámi sínu í vetur.
Markmiðið er að gera stærðfræðiþjálfunina fjölbreytta og skemmtilega og gefa nemendum tækifæri til að efla færni sína í gegnum leik.
Við þökkum Sigga kærlega fyrir skemmtilega og fróðlega kynningu og samfélagsverkefninu Andvara fyrir stuðninginn. Við hlökkum til að fylgjast með nemendum takast á við verkefnin í Evolytes í vetur. Smellið hér til að fara inn á heimasíðu Evolytes.

|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is