- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Nemendur í 10. bekk fengu 25. febrúar sl. heimsókn frá Lýðræðislest Alþingis. Þar fengu þeir að setja sig í spor þingmanna, skipta sér í stjórnmálaflokka og vinna að málefnum á þingflokks-, nefndar- og þingfundum. Nemendur hlustuðu jafnframt á rök sérfræðinga og lærðu að meta ólík sjónarmið til að komast að lýðræðislegri niðurstöðu.
Heimsóknin hafði það að markmiði að veita nemendum innsýn í dagleg störf þingmanna, hvernig lög verða til og hvernig lagafrumvörp fara í gegnum ferlið frá hugmynd að samþykktum lögum. Jafnframt var lögð áhersla á að efla skilning á stjórnskipulagi, lýðræðislegum vinnubrögðum og áhrifum almennings, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Verkefnið átti einnig að vekja áhuga og dýpka skilning nemenda á starfsemi Alþingis.
Að sögn Tómasar Leifssonar fræðslustjóra stóðu nemendur sig afar vel og sýndu mikinn áhuga á verkefninu. Þeir voru sammála umsjónarkennurum sínum um að gaman væri að vinna fleiri verkefni af þessu tagi í skólanum. Smellið hér til að sjá fleirir myndir.

Sandgerðisskóli þakkar Alþingi og starfsmönnum þess kærlega fyrir komuna.
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is