- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Gerðaskóla í ár. En þetta er í tuttugasta og níunda skiptið sem Sandgerðisskóli tekur þátt í keppninni. Nemendur úr Gerðaskóla, Sandgerðisskóla og Stóru- Vogaskóla tóku þátt.
Undirbúningur Stóru upplestrarkeppninnar hefst á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember, hjá öllum nemendum í 7. bekk. Kjörorð verkefnisins eru að nemendur læri að vanda flutning og framburð íslensks máls, læri að njóta þess að flytja móðurmálið, sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Bergrún Embla Hlynsdóttir, Jónas Ingi Jónasson og Óðinn Þór Brynjarsson kepptu fyrir hönd Sandgerðisskóla. Alexandra Ibhade Oriri Lastra og Eliza Zelaznicka nemendur í 7. bekk Sandgerðisskóla sáu um tónlistarflutning á hátíðinni ásamt nemendum úr Stóru-Vogaskóla og Gerðaskóla. Nemendur stóðu sig öll frábærlega og voru sjálfum sér og skólanum sínum til mikilla sóma.
Bergrún Embla var í 2. sæti og óskum við henni innilega til hamingju með árangurinn.🥈Stóru-Vogaskóli sigraði keppnina í ár, Sandgerðisskóli í 2. sæti og Gerðaskóli í 3. sæti,við óskum þeim einnig innilega til hamingju með árangurinn. 🥰



|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is