Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Gerðaskóla í ár. En þetta er í tuttugasta og sjötta skiptið sem Sandgerðisskóli tekur þátt í keppninni. Nemendur úr Sandgerðisskóla, Gerðaskóla, Grunnskóla Grindavíkur og Stóru- Vogaskóla tóku þátt.

Wiktoría Nut Thiaochanthuek nemandi úr Sandgerðisskóla opnaði hátíðina með flutningi á laginu “Solas” eftir Jamie Duffy.

Oddný Lilja Eckard nemandi úr Sandgerðisskóla og sigurvegari Stóru upplestrarkeppninnar á síðasta ári las kynningu á öðrum höfundi keppninnar.

Undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppninnar hefst á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember, hjá öllum nemendum í 7. bekk. Kjörorð verkefnisins eru  að nemendur læri að vanda flutning og framburð íslensks máls, læri að njóta þess að flytja móðurmálið, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Franz Mikael Jensson, Kristín Hrefna Ásmundsdóttir og Sesselja Ásta Svavarsdóttir kepptu fyrir hönd Sandgerðisskóla. Keppendur og flytjendur stóðu sig öll frábærlega og voru sjálfum sér og skólanum til mikilla sóma.