Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2022
Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2022

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Stóru- Vogaskóla í ár. En þetta er í tuttugasta og fimmta skiptið sem Sandgerðisskóli tekur þátt í keppninni. Nemendur úr Gerðaskóla, Grunnskóla Grindavíkur, Sandgerðisskóla og Stóru- Vogaskóla tóku þátt.    

Undirbúningur Stóru upplestrarkeppninnar hefst á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember, hjá öllum nemendum í 7. bekk. Kjörorð verkefnisins eru  að nemendur læri að vanda flutning og framburð íslensks máls, læri að njóta þess að flytja móðurmálið, sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Eva Rún Grétarsdóttir, Katrín Lilja Óskarsdóttir og Oddný Lilja Eckard kepptu fyrir hönd Sandgerðisskóla, Ólavía Lind Björnsdóttir söng og spilaði á píanó stúlkurnar stóðu sig allar frábærlega og voru sjálfum sér og skólanum sínum til mikilla sóma. 

Oddný Lilja var í 1. sæti og óskum við henni innilega til hamingju með árangurinn. Skólarnir í Suðurnesjabæ voru sigursælir í keppninni að þessu sinni en nemendur úr Gerðaskóla voru í 2. og 3. sæti og við óskum þeim einnig innilega til hamingju með árangurinn.