Lof mér að falla – Jafningjafræðsla

Nemendur í 10. bekk stóðu fyrir jafningjafræðslu fyrir nemendur í 8. og 9. bekk. Umræðuefnið var kvikmyndin Lof mér að falla, boðskapur hennar og skaðsemi vímuefna og áhrif þeirra á líkamann. Nemendur voru einstaklega duglegir að segja frá Kristínu Gerði, sem myndin er byggð á.

Þetta er árlegur viðburður í náttúrufræði þar sem tekið er föstum tökum á þessu mikilvæga málefni og yngri nemendum sýnd skaðsemi vímuefna á skýran og áhrifaríkan hátt. Forvarnaverkefni af þessu tagi skipta ótrúlega miklu máli fyrir nemendur og skólansamfélagið í heild.

Gaman var að fylgjast með nemendum vinna að verkefninu og var útkoman frábær.  Smellið hér til að sjá fleiri myndir.

Jafningjafræðsla Jafningjafræðsla