Ljósabolti sló í gegn í Sandgerðisskóla

Í tilefni Skeljarinnar,Barnamenningarhátíðar Suðurnesjabæjar var boðið uppá skemmtilega tilbreytingu fyrir nemendur grunnskólans í íþróttatíma, hinn óvenjulega og spennandi ljósabolta.

Viðburðurinn fór fram í myrkvuðum íþróttasal Sandgerðisskóla þar sem aðeins boltinn og mörkin voru lýst upp. Nemendur fengu glóandi armbönd og sást því ekkert annað í salnum, en armböndin, boltinn og mörkin.

Allir nemendur tóku virkan þátt í leikunum og sló Ljósaboltinn svo sannarlega í gegn. Smellið hér til að sjá fleiri myndir.

Ljósabolti Ljósabolti

Ljósabolti Ljósabolti