Litla upplestrarkeppnin haldin hátíðleg á sal skólans

Árgangur 2015
Árgangur 2015

Litla upplestrarkeppnin fór fram á sal Sandgerðisskóla í dag 22. maí, en þar fluttu nemendur í 4. bekk fjölbreytta texta á sviði.

Meginmarkmið keppninnar er að nemendur þjálfist í að flytja íslenskt mál, sjálfum sér og öðrum til ánægju og segja má að litla upplestrarkeppnin sé undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin er ár hvert í 7. bekk.  

Foreldrar, forráðamenn og nemendur í 3. bekk hlustuðu á nemendur 4. bekkjar flytja ljóð og lesa sögur fyrir framan hóp af fólki og sýna færni sína í upplestri. Nemendur höfðu æft af kappi frá 16. nóvember sl. fyrir þessa keppni, en þá hefst æfingarferlið á degi íslenskrar tungu. Nemendur stóðu sig allir með glæsibrag. 

Í lokin buðu nemendur 4. bekkjar foreldrum sínum í pálínuboð í stofunni sinni sem heppnaðist einstaklega vel og þökkum við foreldrum kærlega fyrir frábærar veitingar.  

Smellið hér til að sjá myndir frá hátíðinni.

Litla upplestrarkeppnin