- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Fróðleiksfúsir nemendur komu í heimsókn í náttúrufræðistofuna til að skoða innyfli úr svíni. Nemendur í 1.–10. bekk tóku þátt í krufningunni og var gaman að sjá hversu margir sýndu mikinn áhuga á að fræðast nánar um líffærin.
Nemendur fengu hanska til að nota þegar þeir skoðuðu innyflin. Yngsta stigið fékk að skoða hvert líffæri fyrir sig í rólegheitum. Nemendur á miðstigi skoðuðu innyflin eftir að búið var að kljúfa þau í tvennt, þannig að hægt væri að sjá betur hvernig þau líta út að innan. Nemendur á unglingastigi fengu að kryfja og skoða innyflin enn nánar og stóðu sig afar vel.
Sumum fannst þetta dálítið ógeðslegt, en voru samt forvitin og fylgdust vel með samnemendum sínum við skoðunina. Margir nemendur voru hugrakkir og blésu með plaströri í lungun til að sjá þau þenjast út.
Krufningin var algjört ævintýri og einstaklega skemmtilegt var að fylgjast með nemendum skólans. Ánægjulegt var að sjá hversu mikinn áhuga þeir höfðu á líffærunum og fræðslunni sem þeim bauðst. Smellið hér til að sjá fleiri myndir


|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is