Kór veturinn 2021-2022

Í vetur ætlum við að hefja fjórtánda starfsár barnakórsins. Hvet alla sem elska að syngja í góðum hóp að vera með okkur í vetur.

Söngur-vinátta-leikir

  • Kóræfingar yngri kórs (2.- 4.bekkur) verða á mánudögum kl.13:15.  
  • Kóræfingar eldri kórs (5.bekkur og eldri) verða á miðvikudögum kl.14:00.


Margt skemmtilegt verður á dagskránni í vetur, landsmót eldri (ef covid leyfir), æfingabúðir, jóla-tónleikar, náttfatapartý, messusöngur, vorferð og fleira skemmtilegt.

Verkefni vetrarins; popp lög, söngleikjalög, þjóðlög og fleira úr ýmsum áttum, ásamt því að syngja í míkrafón fyrir þá sem vilja prófa. Kórmeðlimir geta líka haft áhrif á lagaval.

Skráning er hafin hjá Ingu ritara eða hjá Sigurbjörgu kórstjóra.

Einnig er hægt að skrá sig á facebook-síðu kórsins. (skólakór sandgerðisskóla)

Fyrsta æfingin verður mánudaginn 30. ágúst.

Hlakka til að sjá sem flesta, gamla og nýja meðlimi.

Með söngkveðju

Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, kórstjóri,  sigurbjorg.h@sandgerdisskoli.is