Jólalestur á aðventunni

Hefð hefur skapast fyrir því í Sandgerðisskóla að skólastjóri lesi upp úr jólabók á aðventunni fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Í dag las Bylgja fyrir þá bókina Kertasníkir leysir frá skjóðunni eftir Markus Kislich. Nemendurnir voru áhugasamir þegar þeir hlýddu á lesturinn og höfðu um margt að ræða varðandi komu jólasveinanna.

Jólalestur á aðventunni Jólalestur á aðventunni

Smellið hér til að sjá fleiri myndir frá samverustundinni.