Jólalestur á aðventunni

Hefð hefur skapast fyrir því í Sandgerðisskóla að skólastjóri lesi upp úr jólabók á aðventunni fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Í ár las Bylgja fyrir nemendur í 1. bekk bókina Kertasníkir leysir frá skjóðunni eftir Markus Kislich og bókina Nýju fötin jólasveinanna eftir Jean Posocco og Hildi Bjarnarson. Nemendurnir voru áhugasamir og prúðir þegar þeir hlýddu á lesturinn og höfðu um margt að ræða varðandi komu jólasveinanna.

Jólalestur á aðventunni Jólalestur á aðventunni 

Jólalestur á aðventunni Jólalestur á aðventunni

Jólalestur á aðventunni Jólalestur á aðventunni