Jólalestur

Hefð hefur skapast fyrir því í Sandgerðisskóla að skólastjórnandi lesi upp úr jólabók á aðventunni fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Í dag las Bylgja fyrir þau bókina Jólaævintýri afa gamla eftir Brian Pilkington. Nemendurnir voru prúðir og áhugasamir þegar þeir hlýddu á lesturinn.