Jólakveðja

Kæru nemendur, foreldrar/forráðamenn og aðrir velunnarar skólans.

Jólaleyfi nemenda hefst miðvikudaginn 21. desember. Skólinn hefst aftur að loknu jólaleyfi miðvikudaginn 4. janúar 2023, samkvæmt stundaskrá.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum ykkur fyrir ánægjulegt og gott samstarf á árinu sem er að líða.

Megi komandi ár verða farsælt og gjöfult í leik og starfi.

Með jólakveðju, starfsfólk Sandgerðisskóla