Jólaföndur með foreldrafélaginu 🎄✨

Það ríkti sannkölluð jólastemning þegar foreldrafélag Sandgerðisskóla bauð nemendum og fjölskyldum þeirra á notalegt jólaföndur. Gestir nutu þess að föndra fjölbreytt jólaskraut, spjalla saman yfir heitu kakói og gæða sér á ljúffengum piparkökum.

Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir frábært framtak og öllum þeim sem komu og tóku þátt í skemmtilegri samverustund. Svona viðburðir skapa dýrmætar minningar og styrkja skólasamfélagið okkar.

Smellið hér til að sjá myndir frá deginum.📸🎅

Jólaföndur Jólaföndur

Jólaföndur