Íþróttamaraþon 10. bekkjar

Árgangur 2010
Árgangur 2010

10. bekkur Sandgerðisskóla hefur árlega farið í íþróttamaraþon sem fjáröflun fyrir vorferðina sína. Á því var engin breyting þetta árið. Maraþonið fer þannig fram að nemendur stunda íþróttir alla nóttina. Nemendur stóðu sig vel og fóru þeir m.a. í  fótbolta, körfubolta, blak, paintball, badminton, sund, o.fl. Nemendur enduðu svo maraþonið á góðri slökun áður en haldið var heim. Hér má sjá fleiri myndir.

Dagana fyrir maraþonið gengu nemendur í hús og söfnuðu áheitum og fengu frábærar móttökur frá íbúum bæjarins og vilja þeir koma kærum þökkum til allra þeirra sem styrktu þá með áheitum 🫶

Íþróttamaraþon Íþróttamaraþon

Íþróttamaraþon Íþróttamaraþon