Íþróttamaraþon 10. bekkjar

10. bekkurinn í Sandgerðisskóla hefur árlega farið í íþróttamaraþon sem fjáröflun fyrir vorferðina sína. Á því var engin breyting þetta árið. Maraþonið fer þannig fram að nemendur stunda íþróttir alla nóttina. Nemendur stóðu sig vel og farið var í: skotbolta, fótbolta, körfubolta, gryfjubolta, boccia, fílafótbolta, sund og hugleiðslu/teygjur.

Dagana fyrir maraþonið gengu nemendur í hús og söfnuðu áheitum og fengu frábærar móttökur frá íbúum bæjarins og vilja þau koma kærum þökkum til allra þeirra sem styrktu þau í átakinu.  Hægt er að styrkja með því að leggja áheit inn á reikning þeirra: kt. 671088-5229,  0147-15-210126.