- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Mikið var um heilsueflandi uppbrot í Sandgerðisskóla í síðustu viku í tilefni af Heilsuviku Suðurnesjabæjar. Aukin áhersla var á hreyfingu, vellíðan og heilbrigðan lífsstíl og var ýmislegt skemmtilegt í boði alla vikuna.
Í bekkjarstofum var meðal annars unnið með hugleiðslu og liðleikaæfingar og nemendur tóku þátt í fjölbreyttum leikjum og keppnum. Umsjónarbekkir fóru í gönguferðir, spiluðu körfubolta og fótbolta og tóku þátt í ýmiss konar hreyfingu. Nemendur fengu einnig fræðslu um mikilvægi heilbrigðs lífsstíls, meðal annars um mikilvægi þess að drekka nóg vatn, fá nægan svefn, borða næringarríkan mat og stunda reglulega hreyfingu.
Þorgrímur Þráinsson heimsótti 10. bekk og Ævar vísindamaður las upp úr nýrri bók sinni fyrir nemendur 5. - 8. bekk.
Í Heilsuvikunni var einnig haldinn Forvarnardagur í 9. bekk þar sem áhersla var lögð á samtal og samkennd. Niðurstöður úr vinnu nemenda verða kynntar foreldrum og birtar í sérstakri frétt í vikunni.
Íþróttadagur
Á miðvikudag var haldinn Íþróttadagur Sandgerðisskóla. Nemendur byrjuðu daginn utandyra þar sem þeir tóku þátt í fjölbreyttum leikjum og skemmtilegri stöðvavinnu.
Eftir frímínútur tók svo við einn af hápunktum dagsins, hin árlega fótboltakeppni starfsfólks og nemenda í 10. bekk. Keppnin á sér langa sögu og hefur þessi skemmtilega hefð verið við lýði í Sandgerðisskóla í yfir þrjátíu ár.
Nemendur í 10. bekk létu heldur betur finna fyrir sér á vellinum og gáfu starfsfólkinu ekkert eftir. Að þessu sinni hafði starfsfólkið þó betur og vann báða leikina naumlega. Dagurinn tókst einstaklega vel og einkenndist af gleði, góðri samveru og hæfilegu keppnisskapi.
Ólympíuhlaup ÍSÍ
Heilsuvikunni lauk svo með Ólympíuhlaupi ÍSÍ á föstudag. Nemendur stóðu sig gríðarlega vel og hlupu samtals 1.722 kílómetra. Til samanburðar er Hringvegurinn um 1.322 km, þannig að samanlagt hlupu nemendur rúmlega heilan hring í kringum Ísland og um 400 kílómetra til viðbótar!
3. og 8. bekkur fengu sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa hlaupið lengstu vegalengdina að meðaltali. Þeir fá því að varðveita farandsbangsann Blossa fram að næsta Ólympíuhlaupi.
Nemendur í 1.–4. bekk sem hlupu meira en 7,5 km fengu sérstaka viðurkenningu og sömuleiðis nemendur í 5.–10. bekk sem hlupu meira en 10 km. Nemendur hafa einungis eina klukkustund til að hlaupa og því er um frábæran árangur að ræða. Aldrei hafa fleiri nemendur náð þessum vegalengdum í Ólympíuhlaupinu hjá okkur og voru því verðlaunahafar ansi margir.
Heilsuvikan var sannarlega viðburðarík og gaman var að sjá hversu vel nemendur tóku þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem í boði voru.
Smellið hér til að sjá myndir frá Heilsuvikunni og hér til að sjá myndir frá Ólympíuhlaupi ÍSÍ



|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is