Hönnun mannslíkamans í fullri stærð

Nemendur í 9. bekk fengu tækifæri til að hanna mannslíkama í fullri stærð. Stúlkurnar unnu að gerð kvenmannslíkama og drengirnir að karlmannslíkama. Markmiðið með verkefninu var að hjálpa nemendum að átta sig betur á staðsetningu líffæra og afla sér upplýsinga um hlutverk og starfsemi þeirra.

Verkefnið eflir einnig hæfni í hópvinnu þar sem hver og einn leggur sitt af mörkum og nýtir eigin styrkleika. Það var virkilega gaman að fylgjast með metnaði nemenda að hönnun líkamsmyndanna, og ljóst að mikil vinna fór í að gera þær svona glæsilega.

Teikningarnar hanga nú uppi á unglingaganginum og hvetjum við alla til að kíkja við og skoða þessi frábæru listaverk. Einnig má sjá verkefnin hér.

Hönnun mannslíkamans í fullri stærð Hönnun mannslíkamans í fullri stærð

Hönnun mannslíkamans í fullri stærð Hönnun mannslíkamans í fullri stærð