Hljómsveitarval

Þá er fyrsti hópurinn af fjórum búinn að klára sex vikur í hljómsveitarvali. Nemendur fengu að kynnast því að spila í hljómsveit og að syngja. Einnig fengu nemendur að kynnast hinum ýmsum hljóðfærum, t.d. rafmagnsgítar, trommum, ukulele og að syngja í míkrafón. Nemendur enduðu síðasta tímann á því að spila lagið, Radioactive með hljómsveitinni Imagine Dragons.