Hertar reglur varðandi sóttvarnir

Í ljósi nýrrar reglugerðar um takmörkun vegna farsóttar verður skólastarfið með eftirfarandi hætti frá mánudeginum 15. nóvember. 

Í grunninn byggist skipulagið á eftirfarandi þáttum: 

  • Í grunnskólum gilda almennar reglur um 50 manna fjöldatakmarkanir 
    • Í sameiginlegum rýmum skóla, s.s. við innganga, í anddyri, á göngum og í matsal er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkunum. Einnig eiga fjöldatakmarkanir ekki við um frímínútur á skólalóð. 
  • Nálægðarmörk eru 1 metri milli ótengdra aðila 
    • Ef ekki er hægt að virða mörkin er skylt að nota andlitsgrímu. Nemendur í  1. til 4. bekk eru undanþegnir 1 metra reglunni 
    • Þá er heimilt að víkja frá 1 metra nálægðartakmörkun milli nemenda í grunnskólum þar sem henni verður ekki viðkomið.   
  • Nemendur í 1. – 10. bekk eru undanþegnir grímuskyldu. 
  • Starfsfólk skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörkun 
    • Starfsfólki er heimilt að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofum. 
  • Blöndun milli hópa er heimil. 

Við hvetjum alla til þess að gæta að persónulegum smitvörnum og minnum á mikilvægi handþvottar og notkun spritts.

Sýnum samstöðu, við erum öll í þessu saman.