Heimsókn á Byggðasafnið á Garðskaga

Í dag var nemendum úr 1. bekk  boðið á Byggðasafnið á Garðskaga. Farið var með rútu sem var mikið sport. Á Byggðasafninu var vel tekið á móti okkur og fengu nemendur fræðslu um gamlar jólahefðir og skemmtilega kynningu á íslensku jólasveinunum og jólakettinum. Í lokin voru börnin leyst út með góðgæti, allir skemmtu sér vel og voru nemendur til fyrirmyndar. Við þökkum Byggðasafninu fyrir gott boð. Smellið hér til að sjá fleiri myndir.

Heimsókn á Byggðasafnið Heimsókn á Byggðasafnið

Heimsókn á Byggðasafnið Heimsókn á Byggðasafnið