Gul veðurviðvörun frá hádegi í dag

Samkvæmt veðurstofu þá er gul viðvörun frá hádegi í dag og er því mikilvægt að fylgjast með veðri til að leggja mat á hvort sækja þurfi börnin í lok dags. Við minnum á að skólinn er öruggt skjól fyrir börnin en mikilvægt að foreldrar geri ráðstafanir, að börn verði sótt í skólann/frístund þegar skóladegi lýkur.