- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Þann 15. september kom Haukur Brynjarsson frá Netvís í Sandgerðisskóla og hélt fróðlegan fyrirlestur fyrir foreldra og forráðamenn undir yfirskriftinni Stolin athygli leitar eiganda síns.
Í erindinu fjallaði Haukur meðal annars um skjátíma barna, samfélagsmiðla, samskipti á netinu og hvernig tæki, leikir og öpp eru hönnuð til að fanga athygli okkar. Einnig voru foreldrum veitt góð ráð og gagnleg verkfæri til að styðja við ábyrga skjánotkun barna.
Að loknum fyrirlestrinum var foreldrum boðið í heimastofur barna sinna þar sem umsjónarkennarar fóru yfir skipulag, nám og verkefni vetrarins. Það var ánægjulegt að sjá hve margir gáfu sér tíma til að mæta og taka þátt í þessari mikilvægu samveru um nám barna sinna, skjánotkun og þær áskoranir sem fjölskyldur standa frammi fyrir í stafrænum heimi nútímans.
Mætingin var frábær og bæði fyrirlesturinn og heimsóknirnar í heimastofurnar voru áhugaverðar og gagnlegar. Við þökkum Hauki kærlega fyrir komuna og foreldrum og forráðamönnum fyrir góða þátttöku. Smellið hér til að skoða heimasíðu Netvís
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is