Glæsileg árshátíð yngri nemenda

Dýrabær
Dýrabær

Í seinustu viku voru árshátíðir yngri bekkja skólans haldnar með miklum glæsibrag á sal skólans.

Á árshátíð nemenda í 1. og 2. bekk, ásamt útskriftarhópi leikskólans, var þemað vinátta. Nemendur sungu falleg lög og fluttu ljóð sem tengdust þemanu og sköpuðu hlýlega og skemmtilega stemningu.

Á árshátíð nemenda í 3.–6. bekk sýndu nemendur leikritið Dýrabær. Söngleikurinn er byggður á bók George Orwell, Animal Farm. Íris Valsdóttir, umsjónarkennari í 5. bekk, samdi handritið og fléttaði inn í það helstu stefnum skólans, Uppbyggingarstefnunni, Heimsmarkmið UNESCO og Heilsueflandi grunnskóla. Íris var jafnframt leikstjóri sýningarinnar og henni til halds og trausts var Hlynur Þór Valsson aðstoðarleikstjóri, en hann sá einnig um upptökur og tæknimál þá sá Konný Hrund Gunnarsdóttir um sviðsmynd og hönnun.

Nemendur hafa verið á reglulegum æfingum frá áramótum og má með sanni segja að allir hafi staðið sig afar vel og margir átt algjöran leiksigur. Mikil tónlist og söngur var í sýningunni og útfærðu nemendur öll lög með dansi og söng.

Víkurfréttir heimsóttu skólann, tóku upp hluta af leiksýningunni og tóku jafnframt viðtöl við nemendur og starfsfólk.

Smellið hér til að sjá myndir frá sýningu 1. og 2. bekkjar ásamt útskriftarhópi Leikskólans Grænuborgar.

Smellið hér til að sjá myndir frá sýningu nemenda í 3. - 6. bekk og smellið hér til að horfa á upptöku af leiksýningunni Dýrabær.

Við viljum þakka öllum þeim sem komu að þessari skemmtilegu árshátíð, nemendum, kennurum, starfsfólki og leikskólastarfsfólki fyrir frábæra daga. Einnig viljum við þakka foreldrum/forráðamönnum og öðrum gestum fyrir komuna. Þá þökkum við sérstaklega aðkomu Tónlistarskólans að tónlistaratriðum og Byggðasafninu á Garðskaga fyrir lán á leikmunum.

Dýrabær Hér má sjá leikskrána.

Dýrabær