- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram í skólanum í gær, fimmtudaginn 19. febrúar.
Nemendur í 7. bekk hófu æfingar og undirbúning eftir Dag íslenskrar tungu þann 16. nóvember síðastliðinn, og var þetta lokapunktur keppninnar innan skólans.
Allir keppendur stóðu sig virkilega vel, lögðu mikinn metnað í æfingar og því var keppnin afar hörð í ár.
Þrír fulltrúar munu nú hefja þjálfun fyrir lokakeppnina, sem haldin verður 10. mars nk. í Gerðaskóla.
Það voru þau Bergrún Embla Hlynsdóttir, Jónas Ingi Jónasson og Óðinn Þór Brynjarsson sem valin voru til að vera fulltrúar Sandgerðisskóla í keppninni þetta árið, og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis í lokakeppninni.
Smellið hér til að sjá fleiri myndir frá hátíðinni.

|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is