Fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni

Fulltrúar skólans 2022
Fulltrúar skólans 2022

Undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram í skólanum, máudaginn 7. apríl sl.. Nemendur í 7. bekk hafa verið við æfingar frá Degi íslenskrar tungu 16. nóvember í haust og var þetta lokapunktur keppninnar innan skólans. Allir nemendur hafa lagt mikinn metnað í æfingar fyrir keppnina og var keppnin því virkilega hörð í ár.

Þrír fulltrúar skólans munu nú hefja þjálfun fyrir lokakeppnina sem fram fer í Stóru- Vogaskóla 28. apríl. En þar mætast keppendur úr fjórum skólum: Sandgerðisskóla, Gerðaskóla, Grunnskóla Grindavíkur og Stóru-Vogaskóla.

Það voru þær  Eva Rún Grétarsdóttir, Katrín Lilja Óskarsdóttir og Oddný Lilja Eckard sem voru valdar til að keppa fyrir hönd Sandgerðisskóla þetta árið og óskum við þeim til hamingju með árangurinn og góðs gengis í lokakeppninni.