Forvarnarverkefnið Ábyrg saman

Í október undirrituðu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum og bæjarstjóri Suðurnesjabæjar samstarfssamning um nýtt forvarnarverkefni Ábyrg saman.

Markmið verkefnisins er að bregðast strax við þegar afskipti eru af barni vegna áhættuhegðunar og koma þannig í veg fyrir endurtekin vandamál.

Þegar lögregla eða aðrir tilkynna barnavernd um áhættuhegðun er foreldrum og barni boðið í samtal með fulltrúum frá barnavernd og lögreglu. Í viðtalinu er farið yfir tilkynninguna, gefið tækifæri til að ræða aðstæður, veitt fræðsla og upplýsingar um úrræði sem standa til boða.

Verkefnið byggir á samstarfi og sameiginlegri ábyrgð íbúa, velferðarþjónustu, lögreglu, skóla og fjölskyldna um farsæld barna og ungmenna í Suðurnesjabæ.