Forvarnardagurinn

Forvarnardagurinn_2022Forvarnardagurinn var haldinn í dag, miðvikudaginn 5. október í öllum 9. bekkjum landsins. Nemendur í 9. bekk Sandgerðisskóla tóku fullan þátt í deginum, en dagskrá var þétt frá skólabyrjun að hádegishléi. Stjórnendur, námsráðgjafi og umsjónarkennarar héldu utan um dagskrá dagsins en að auki komu Elín Björg Gissurardóttir forstöðumaður Skýjaborgar og Kristján Freyr Geirsson lögregluþjónn (betur þekktur sem Krissi lögga) og kynntu störf sín og tóku þátt í samræðum við nemendur. Nemendum var skipt í hópa og svöruðu spurningum um mikilvægi samverustunda með fjölskyldu, að stunda íþrótta- og tómstundastarf og um mikilvægi þess að halda sig frá áfengi og öðrum vímuefnum.

Í meðfylgjandi myndböndum ræða þekktir einstaklingar um mikilvægi þátttöku í æskulýðs- og íþróttastarfi og  mikilvægi samverustunda fjölskyldunnar. Smellið hér til að horfa á myndbandið sem gert var 2016 og hér fyrir nýjasta myndbandið.

Með fréttinni fylgja svör nemenda sem áhugavert er fyrir foreldra að lesa yfir. Hægt er að hlaða því niður sem PDF skjali og einnig er hægt að smella á forsíðumynd til að lesa það í flettiriti. Mælum með að kíkja á svörin og taka samtalið heima.

Forvarnardagurinn_2022

Smellið hér til að sjá myndir frá deginum.