Foreldrafélagið styrkir afþreyingu nemenda

Fulltrúar úr nemendaráði ásamt formanni FFS
Fulltrúar úr nemendaráði ásamt formanni FFS

Sandgerðisskóli vill færa Foreldrafélagi Sandgerðisskóla okkar bestu þakkir fyrir veglegan styrk sem gerði okkur kleift að bæta við afþreyingu fyrir nemendur í frímínútum eftir að Símafriður tók gildi í skólanum.

Það er ánægjulegt að sjá nemendur nýta frímínúturnar til samveru, leikja og útiveru. Við erum sannfærð um að þessi viðbót við afþreyingu nemenda hafi jákvæð áhrif á félagslíf og vellíðan þeirra í skólanum.

Afþreying fyrir nemendur Afþreying fyrir nemendur

Afþreying fyrir nemendur Afþreying fyrir nemendur

Afþreying fyrir nemendur Afþreying fyrir nemendur