Árshátíð unglingastigs

Miðvikudaginn 2. júní 2021 verður árshátíð 7. - 10. bekkjar Sandgerðisskóla haldin á sal skólans.

Húsið opnar kl. 19:15 en skemmtunin hefst stundvíslega kl. 19:30. Foreldrar og forráðamenn nemenda hafa fengið póst með skráningarformi fyrir áhorf á árshátíð.

Eftir skemmtidagskrá frá nemendum verður dansleikur.
* Frítt er á dansleikinn
* Rapparinn Birnir og DJ Garðar Ingi sjá um partýið
* Skýjaborg verður með sjoppu, þar sem nemendur geta keypt nammi og gos. ATH. að það er ekki posi, þannig nemendur þurfa að koma með pening.
* Dansleiknum lýkur kl. 23:00

Hefðbundið skólahald fellur niður þennan dag, þannig nemendur þurfa ekki að mæta í kennslu um morguninn.

Nemendur mæta kl.10:00 fimmtudaginn 3. júní og skóla lýkur um hádegi.

Athugið, við erum búin að stækka dansleikinn, nemendur úr Gerðaskóla mæta kl. 20:30 og taka þátt í dansleiknum.