- Fréttir
 - Skólastarfið
 - Nemendur og Foreldrar
 - Myndir
 - Starfsfólk
 - Um Skólann
 
Í síðustu viku fengu nemendur í 7. bekk í Sandgerðisskóla kennslu og þjálfun í endurlífgun frá Þórnýju skólahjúkrunarfræðingi HSS.
Árið 2018 ákvað Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu að innleiða sambærilegt verklag hérlendis undir íslenska heitinu Börnin Bjarga. Haustið 2019 var þessu verkefni hleypt af stokkunum hér á landi og kennsla í endurlífgun er því orðin hluti af skyldufræðslu skólahjúkrunarfræðinga um allt land. Allir nemendur frá 6. til 10. bekkjar munu árlega fá þjálfun og kennslu í endurlífgun, með áherslu á hjartahnoð.
Þetta er vissulega stórt skref og metnaðarfullt verkefni, en tilhugsunin um að einhvern tíma verði allir Íslendingar, 12 ára og eldri, búnir að fá kennslu í endurlífgun er býsna góð – og rúmlega það.
Smellið hér til að sjá fleiri myndir úr kennslustundinni.
| 
 Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is  | 
   Skrifstofa skólans er opin frá   | 
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is