Emil í Kattholti – Leiklistarboðhlaup

Undanfarnar vikur hafa nemendur í 4.–9. bekk í Sandgerðisskóla æft leikritið Emil í Kattholti undir leiðsögn Arnórs Sindra Sölvasonar. Uppsetningin var með óhefðbundnu sniði, svokölluðu leiklistarboðhlaupi, þar sem hver bekkur tók við keflinu af þeim næsta.

Hver bekkur hafði sinn eigin Emil, Ídu, mömmu, pabba og Alfreð og setti á svið mismunandi prakkarastrik úr ævintýrum Emils. Nemendur í 4. bekk riðu á vaðið með fyrsta leikþáttinn, 5. bekkur tók síðan við og þannig gekk boðhlaupið áfram, alla leið upp í 9. bekk.

Í dag, föstudaginn 6. nóvember, rann stóra stundin upp þegar nemendur sýndu afrakstur æfinganna fyrir yngsta stig skólans. Alls voru haldnar þrjár sýningar: fyrst fyrir 1. bekk, síðan fyrir 2. bekk og að lokum fyrir 3. bekk. Í lok hverrar sýningar sameinuðust leikarar og áhorfendur í fjörugum söng þar sem lagið „Hlustið góðu vinir“ ómaði hátt og skýrt um salinn.

Fyrir marga nemendur voru þetta þeirra fyrstu skref á leiksviði og óhætt að segja að þau hafi staðið sig með mikilli prýði. Öll eiga þau hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu, hugrekki og dugnað á undanförnum vikum.

Það skemmtilega vildi einnig til að Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, var stödd í skólanum og fékk því tækifæri til að fylgjast með fyrstu sýningunni. Það var sérstaklega ánægjulegt að fá að sýna bæjarstjóranum upprennandi leikara framtíðarinnar í Suðurnesjabæ!

Þetta er í fyrsta sinn sem leiklistarboðhlaup er sett á svið í Sandgerðisskóla og stefnt er að því að halda tvö slík boðhlaup til viðbótar á skólaárinu.

Við óskum öllum leikurum innilega til hamingju með frábærar sýningar og þökkum yngstu nemendunum fyrir að vera svona skemmtilegir áhorfendur! ⭐Smellið hér til að sjá fleiri myndir frá sýningunum.

Emil í Kattholti Emil í Kattholti Emil í Kattholti Emil í Kattholti Emil í Kattholti Emil í Kattholti