Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur

Þann 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, héldu nemendur og starfsfólk Sandgerðisskóla daginn hátíðlegan með fjölbreyttri dagskrá bæði innan skólans og í grenndarsamfélaginu.

Dagskráin hófst á sal skólans þar sem Bylgja skólastjóri fjallaði um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar, en dagurinn markar fæðingardag hans. Hún ræddi einnig mikilvægt framlag Jónasar til íslenskrar tungu, meðal annars með nýyrðasmíðum hans og íslenskum heitum yfir fjölmörg fyrirbæri í náttúrunni.

Í máli sínu benti hún á að nýyrði nútímans tengist oft tækni og stafrænum veruleika. Sem dæmi nefndi hún orð eins og hlaðvarp, lofthopp, flettivíti, vitlíki, skjáhelda og gervigubba, sem sýna hvernig íslenskan þróast í takt við breyttan heim.

Vinningshafar Stóru upplestrarkeppninnar frá síðasta vori lásu síðan ljóð fyrir nemendur og starfsfólk. Jafnframt var Stóra og Litla upplestrarkeppnin formlega sett með því að umsjónarkennarar 7. og 4. bekkjar tóku við púltunum sem nemendur munu nýta við undirbúning keppnanna næsta vor.

Við það tækifæri var einnig kynnt að Stóra upplestrarkeppnin fyrir 7. bekk verði haldin í Sandgerðisskóla í mars á næsta ári. Þar munu nemendur frá Sandgerðisskóla, Gerðaskóla og Stóru-Vogaskóla leiða saman hesta sína og keppa í upplestri.

Að vanda lauk dagskránni á sal með fjöldasöng undir forystu skólakórsins. Sigurbjörg og Elsa Marta stýrðu kórnum og Arnór Sindri annaðist undirleik.

Að lokinni dagskrá heimsóttu vinningshafar Stóru upplestrarkeppninnar leikskólann Grænuborg þar sem þeir lásu sögur um vináttu fyrir leikskólabörn. Einnig heimsóttu þeir Miðhús og fluttu þar ljóð fyrir eldri borgara. Nemendurnir stóðu sig einstaklega vel og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

Sandgerðisskóli þakkar starfsfólki og börnum leikskólans Grænuborgar, sem og eldri borgurum og starfsfólki í Miðhúsum, kærlega fyrir hlýjar móttökur og ánægjulega samveru.

Smellið hér til að sjá myndir frá deginum.