Bylgja Baldursdóttir ráðin skólastjóri við Sandgerðisskóla

Bylgja Baldursdóttir hefur verið ráðin nýr skólastjóri við Sandgerðisskóla.

Starf skólastjóra var auglýst laust í apríl og sóttu sjö um starfið. Hagvangur sá um ráðningaferlið og mat Bylgju hæfasta umsækjandann.

Bylgja hefur gegnt stöðu aðstoðarskólastjóra frá árinu 2018, stöðu skólastjóra í afleysingu skólaárið 2021-2022 og starfað í skólaumhverfinu frá 2004.

Bylgja er með B.Ed. gráðu frá Háskólanum á Akureyri og diplómanám í menntastjórnun og matsfræðum.

Við óskum Bylgju velfarnaðar í nýju starfi.