Bóndadagur – Nemendaráðið bauð upp á þorramat

Föstudagurinn 20. janúar var bóndadagur og er það fyrsti dagur Þorra. Sandgerðisskóli tók þátt í þeim degi með þemað lopapeysa og/bindi. Nemendaráðið okkar bauð svo upp á smakk á þorramat en þau voru með hákarl, sviðasultu og hrútspunga. Nemendur og starfsfólk hafði gaman af en eðlilega voru skiptar skoðanir á bragðinu.

Bóndadagur Bóndadagur

Smellið hér til að sjá upptökur frá því þegar nemendur og starfsfólk gæddu sér á gómsætum þorramat.

Bóndadagur