Bollukappát

Á mánudaginn var bolludagurinn haldinn hátíðlegur í Sandgerðisskóla eins og í flestum skólum og á flestum heimilum landsins. Nemendur og starfsfólk skólans úðaði í sig bollum í nestistímanum þar sem mikið var velt fyrir sér hvernig rjómi ætti að vera á bollunni, hvort að sulta eða súkkulaði ætti að vera á milli og hvernig glassúr ætti að vera ofan á. 

Nemendaráðið okkar hélt svo í hádeginu bollukappát þar sem tveir heppnir keppendur voru dregnir út í hverjum árgangi. Mikil stemming var í salnum þegar keppendurnir slöfruðu í sig bollum og samnemendur hvöttu þá áfram.

Bollukappát Bollukappát

Bollukappát Bollukappát

Smellið hér til að sjá fleiri myndir frá keppninni.