Bókagjöf

Í dag kom Marta Eiríksdóttir rithöfundur í heimsókn til okkar í Sandgerðisskóla og færði skólanum eintök af bók sinni Mei mí beibísitt? að gjöf. Skólinn þakkar Mörtu og Víkurfréttum fyrir góða gjöf en bækurnar munu koma að góðum notum í kennslu m.a. í leshópum á unglingastigi.