- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Skólakór Sandgerðisskóla tók þátt í barnakóramóti sem haldið var í Hafnarfirði sl. sunnudag. Barna- og unglingakórarnir höfðu æft fjölbreytta efnisskrá tónleikanna frá áramótum. Kórarnir komu saman á barnakóramótinu til að æfa sameiginlega, æfingunni lauk með barnakóratónleikum í Hafnarfjarðarkirkju.
Um 100 börn tóku þátt í tónleikunum ásamt hljómsveit, kórstjórum og tónlistarkonunni Hafdísi Huld. Yfirskrift tónleikanna var „Í skugga vængja þinna“, sem var einnig yfirskrift kirkjulistaviku prófastsdæmisins. Tónleikarnir tókust afar vel og voru fjölsóttir. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu sameiginlega verkefni og voru meðlimir Skólakórsins til fyrirmyndar, stóðu sig vel og voru sjálfum sér og Skólakórnum til sóma.
Smellið hér til sjá myndir frá kóramótinu.
Hér er hægt að horfa á upptöku frá tónleikunum.

Kórar sem tóku þátt voru:
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is