Baksturs og kökuskreytingaval

Ótrúlega skemmtilegt baksturs og kökuskreytingaval hjá unglingum er nú lokið og var afrakstur þess stórglæsilegur, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Nemendur bökuðu ýmsar kræsingar og skreyttu, hver á sinn hátt, þannig að úr varð hin fjölmörgu meistaraverk. Markmiðið með valinu var að nemendur myndu æfa sig enn frekar í kökubakstri, fá sjálfir hugmyndir af skreytingum og fylgja þeim eftir. Umram allt var þó að eiga góða og skemmtilega stund saman.