Athöfn á Bessastöðum

Samrómur lestrarkeppni grunnskóla stóð yfir dagana 20. - 26. janúar 2022. Sandgerðisskóli eins og svo margir aðrir grunnskólar tóku þátt í keppninni með glæsilegum árangri.   

Í gær voru fulltrúar skólans viðstaddir athöfn á Bessastöðum þar sem forseti Íslands afhenti verðlaun og viðurkenningar fyrir frammúrskarandi árangur. 

Veitt voru verðlaun til skólanna sem voru í fyrsta sæti í sínum flokki, auk þess fengu þrír skólar sem lásu mest þvert á flokka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Skólarnir sem sigruðu sína flokka voru Salaskóli, Smáraskóli og Höfðaskóli. Skólarnir sem fengur viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur voru við í Sandgerðisskóla, Öxarfjarðarskóli og Gerðaskóli.  

Þeir nemendur sem tóku á móti verðlaununum fyrir hönd skólans voru þau Dóróthea Sjöfn Róbertsdóttir og Róbert Sölvi Blöndal en þau eru bæði nemendur í 5. bekk.  

Keppnin var hreint út sagt ótrúleg og allir sem tóku þátt eiga hrós skilið.