Asahláka (Gult ástand)

Á morgun, föstudaginn 20. janúar, er gul veðurviðvörun um land allt og er spáð suðaustan 15-23 m/s um morguninn með slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri.
 
Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.
 
Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.
 
Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í og úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.
 
Við slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt skjól fyrir börnin.