Árshátíðarsýning hjá 1. - 6. bekk

Árshátíðarsýning Sandgerðisskóla Latibær hjá 1. - 6. bekk og skólahóp Leikskólans Sólborgar.

Sýningar verða miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars nk. Sýningar hefjast kl. 10:00

* Nemendur í 1.- 6.bekk mæta í skólann kl.08:15 báða dagana. Kennsla er hefðbundinn fyrir sýningu en nemendur fara heim eftir hádegismat. Skólasel opnar um leið og skóla lýkur.

* Foreldrar og skyldmenni nemenda í bekkjum með slétta tölu 2., 4. og 6. bekk og nemenda leikskólans eru velkomin á sýninguna miðvikudaginn 30. mars.

* Foreldrar og skyldmenni nemenda í bekkjum með oddatölu 1. - 3. og 5. bekk eru velkomin á sýninguna fimmtudaginn 31. mars.

Ef annar dagurinn hentar betur en hinn getið þið haft samband við kennara barns ykkar og látið vita. Líka ef þið eigið börn í sitthvorum bekkjardeildunum getið þið valið ykkur hvorn daginn þið viljið koma. Skiptingin er einungis vegna takmarkaðs sætarýmis.

Við hvetjum alla foreldra og skyldmenni til að koma í skólann og eiga ánægjulega stund með börnunum.