Árshátíð unglingastigs

Árshátíð unglingastigs Sandgerðisskóli, 7.–10. bekkjar, fór fram í gær, fimmtudaginn 26. mars, og heppnaðist afar vel.

Skemmtiatriðin voru í höndum hvers árgangs og var boðið upp á fjölbreytta dagskrá, meðal annars leikrit, myndbönd, kennaragrín, dans og söng. Atriðin voru bæði skemmtileg og metnaðarfull og nemendur stóðu sig einstaklega vel.

Nemendur komu að undirbúningi með virkum hætti og skiptu með sér verkefnum:

7. bekkur tók á móti gestum með glæsilegum fordrykkjum og hlýjum móttökum

8.bekkur sá um skreytingar og var salurinn einstaklega fallegur og vel heppnaður

9.bekkur stýrði dagskránni, kynnti atriði, sá um rósafhendingu og kveðju til 10. bekkjar

Foreldrar og forráðamenn 10. bekkjar buðu nemendum í 10. bekk og starfsfólki upp á veitingar fyrir árshátíðina.

Að loknum skemmtiatriðum tók við ball fyrir nemendur í 7.–10. bekk. Tónlistarmaðurinn Daniil hitaði upp stemninguna og síðan hélt Ragga Hólm uppi fjörinu fram til kl. 23:00. Nemendur úr Gerðaskóli tóku einnig þátt í gleðinni.

Fotomax var á staðnum með myndakassa sem naut mikilla vinsælda meðal gesta.

Við viljum hrósa nemendum sérstaklega fyrir framúrskarandi framkomu og þátttöku. Þau voru skólanum til sóma og lögðu sitt af mörkum til að gera kvöldið eftirminnilegt. Einnig færum við starfsfólki, foreldrum og öllum sem komu að skipulagi og framkvæmd kærar þakkir.

Smellið hér til að sjá myndir frá viðburðinum.

Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar

https://www.sandgerdisskoli.is/is/myndir/myndir-skolaarid-2025-2026/arshatid-7-10-bekkjar-2 Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar https://www.sandgerdisskoli.is/is/myndir/myndir-skolaarid-2025-2026/arshatid-7-10-bekkjar-2