Árshátíð 7. - 10. bekkur

Fimmtudaginn 11. apríl 2019 er árshátíð nemenda í 7. – 10. bekk Sandgerðisskóla. Árshátíðin verður haldin í skólanum. Húsið opnar kl. 19:15 en skemmtunin hefst stundvíslega kl. 19:30. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma og horfa á skemmtiatriðin. Börn yngri en 12 ára (6. bekk) verða að vera í fylgd með fullorðnum á meðan atriðin eru og fara heim með þeim að atriðum loknum. * Eftir skemmtidagskrá frá nemendum verður dansleikur. * Aðgangseyrir á ballið er 1000 krónur. * Plötusnúður á ballinu er Heiðar Austmann. Dansleiknum lýkur kl. 23:30 * Hefðbundið skólahald fellur niður þennan dag. Föstudaginn 12. apríl mæta nemendur í skólann kl. 10:05 og eru til hádegis.