Árshátíð 7. - 10. bekkjar

Fimmtudaginn 26. mars 2026 verður árshátíð 7. - 10. bekkjar Sandgerðisskóla haldin á sal skólans.

Húsið opnar kl. 19:00 og hefst skemmtunin stundvíslega kl. 19:30.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma og horfa á skemmtiatriðin.
Börn yngri en 12 ára (6. bekk) verða að vera í fylgd með fullorðnum á meðan atriðin eru og fara heim með þeim að atriðum loknum.

Eftir skemmtidagskrá verður dansleikur fyrir nemendur í 7. -10. bekk.

🎉Aðgangseyrir á ballið er 2.000 krónur/posi á staðnum
🎉Tónlistarmaðurinn Daniil mætir á svæðið
🎉DJ Ragga Hólm heldur uppi stuðinu á ballinu sem lýkur kl. 23:00.
🎉Myndakassi verður á staðnum.
🎉Skýjaborg verður með sjoppu/posi á staðnum

Eins og áður mæta nemendur unglingastigs Gerðaskóla kl. 21:00 og verða með á ballinu.

Hefðbundið skólahald fellur niður þennan dag hjá nemendum í 7. - 10. bekk en nemendur geta þurft að mæta þennan dag í samráði við kennara sína vegna æfingar fyrir atriði eða annars undirbúnings.

Föstudagurinn 27. mars er skertur nemendadagur /Bíódagur og mæta nemendur í 7. - 10. bekk í skólann kl. 10:00 og skóladegi þeirra lýkur um hádegi.